Norðurírski stjórnmálamaðurinn John Hume er látinn 83 að aldri. Hume hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1999 ásamt David Trimble, leiðtoga Einingarflokks Ulsters, sem er helsti flokkur mótmælenda á Norður-Írlandi. Hume var leiðtogi Jafnaðar- og verkamannaflokks Norður-Írlands (SDLP), sem er flokkur hófsamra kaþólikka.
Fjölskylda Hume greinir frá andláti hans í tilkynningu til fjölmiðla í morgun. Þar kemur fram að hann hafi látist í nótt eftir skammvinn veikindi.
John Hume og David Trimble fengu friðarverðlaunum Nóbels fyrir framlag sitt til friðar á Norður-Írlandi.
Hume er fyrrverandi kennari og faðir hans gaf honum það heilræði að skipta sér aldrei af stjórnmálum. Hans afskipti af stjórnmálum hófust hins vegar árið 1968 og var Hume einn af stofnendum SDLP árið 1970. Hann varð formaður flokksins 1979 en lét af embættinu í nóvember 2001.
Í yfirlýsingu Nóbelsverðlaunanefndarinnar á sínum tíma kom fram að John Hume hafi verið einarðastur norðurírskra stjórnmálamanna í því verki að finna friðsamlega lausn á málum Norður-Írlands.
Þar sagði jafnframt að Trimble hafi sýnt mikið pólitískt hugrekki þegar hann tók af skarið á viðkvæmum tíma í friðarviðræðunum og beitti sér fyrir þeirri lausn sem náðist fram. Sem forvígismaður norðurírsku ríkisstjórnarinnar hafi hann síðan tekið fyrstu skrefin í átt til þess að mynda það gagnkvæma traust sem nauðsynlegt sé til að tryggja megi varanlegan frið.