Sjúkrahús í Beirút hafa neyðst til að vísa særðum frá vegna þess að þau eru yfirfull í kjölfar sprenginga sem urðu í borginni um miðjan daginn í dag. Að minnsta kosti 25 eru látin og á þriðja þúsund slösuð.
Yfirmaður Rauða krossins í Líbanon sagðist í samtali við þarlenda fjölmiðla telja að mörg hundruð hefðu slasast í sprengingunum.
Líbanskir sjónarvottar hafa greint frá því í samtali við þarlenda fjölmiðla að tugir látinna væru á vettvangi.
Abbas Ibrahim, yfirmaður almannavarna í Líbanon, sagði líklegustu skýringuna á sprengingunum þá að eldur hafi borist í vöruskemmu þar sem sprengiefni sem gert hafði verið upptækt var geymt. Líklegast hafi verið um að ræða natríumnítrat.
Ibrahim bætti því enn fremur við að rannsókn á sprengingunum hæfist þegar í stað.
Fréttin hefur verið uppfærð.