Björgunarsveitir leita nú fjölda fólks sem saknað er eftir tvær sprengingar sem urðu í Beirút, höfuðborg Líbanon, í gær. Talið er að fleiri en hundrað sitji föst í rústum bygginga sem eyðilögðust í sprengingunum.
Rauði krossinn í Líbanon hefur staðfest að á annað hundrað séu látin og á fimmta þúsund slösuð eftir sprengingarnar, sem urðu á hafnarsvæði höfuðborgarinnar.
Talið er að kviknað hafi í vöruskemmu þar sem forsetinn Michel Aoun segir að 2.750 tonn af ammóníum-nítrati hafi verið geymd við óviðunandi aðstæður í sex ár.
Aoun hefur boðað ríkisstjórn Líbanon á sinn fund í dag þar sem hann mun óska eftir því að neyðarástandi verði lýst yfir í landinu næstu tvær vikurnar, en vísa hefur þurft slösuðum frá sjúkrahúsum vegna anna eftir sprengingarnar. Þá hefst þriggja daga þjóðarsorg í dag, miðvikudag.