Tónlistarmaðurinn Neil Young hyggst kæra framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta fyrir að spila lög Young án hans leyfis á viðburðum í tengslum við framboðið.
Young lagði fram kæruna til dómstóls í New York-ríki og sagði forsetann brjóta höfundaréttarlög með notkun sinni á lögunum „Rockin' in the Free World“ og „Devil's Sidewalk“ á pólitískum framboðsfundum.
Eftir því sem fram kemur á BBC hefur Young áður kvartað undan notkun forsetans á tónlist hans frá árinu 2015, en að forsetinn hafi „af ásettu ráði“ hundsað kvartanir hans.
Young, sem er ættaður frá Kanada en er bandarískur ríkisborgari eftir áratuga búsetu í Bandaríkjunum, krefst allt að 150.000 dollara, því sem jafngildir rúmum 20 milljónum króna, fyrir hvert brot, meðal annars fyrir spilun laganna á framboðsfundi í Tulsa í Oklahoma í júní og í heimsókn forsetans til Rushmore-fjalls í júlí.
„Þessari kæru er ekki ætlað að vanvirða réttindi og skoðanir bandarískra borgara, sem hafa það frelsi að styðja þann frambjóðanda sem þeir vilja,“ sögðu lögmenn Young í yfirlýsingu sinni. „Aftur á móti getur stefnandinn ekki með góðri samvisku leyft það að tónlist hans sé notuð sem „titillag“ fyrir sundrandi and-bandarískt framboð sem einkennist af fáfræði og hatri.“