Alexander Lúkasjenkó ætlar að herða enn aðgerðir gegn mótmælendum í Hvíta-Rússlandi.
Lúkasjenkó hefur verið forseti Hvíta-Rússlands allt frá 1994, en meintu endurkjöri hans hefur verið mótmælt í 10 daga og niðurstöður kosninganna, sem sýndu Lúkasjenkó fá 80% atkvæða, sagðar falsaðar.
Kveðst forsetinn hafa gefið skipanir þess efnis að mótmæli verði kveðin niður í höfuðborginni Minsk.
Evrópusambandið tilkynnti fyrr í dag að það viðurkenndi ekki niðurstöður forsetakosninganna og biðlaði til Lúkasjenkós að láta laus hundruð mótmælenda sem handteknir hafa verið.