Slasaði vegfarendur viljandi

AFP

Karlmaður, sem sagður er vera íslamisti, varð valdur að nokkrum umferðarslysum í Berlín í gærkvöldi. Sex slösuðust, þar af þrír mjög alvarlega.

Að sögn saksóknara er vitað til þess að ástæðan fyrir hegðun mannsins sé tengd íslamskri öfgahyggju. AFP hefur eftir innlendum fjölmiðlum að maðurinn sé þrítugur Íraki sem hafi æpt allahu akbar á arabísku eða Guð er mikill þegar hann kom út úr bifreið sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert