Lögregla beitti táragasi á mótmælendur sem kröfðust kynþáttaréttlætis í borginni Kenosha í Wisconsin-ríki í gærkvöldi. Mótmælin hófust á sunnudag í kjölfar þess að lögreglumaður skaut svartan óvopnaðan mann í bakið.
Jacob Blake, sem er 29 ára gamall, var skotinn ítrekað í bakið af lögreglu síðdegis á sunnudag að þremur börnum hans sjáandi.
Útgöngubann var sett á strax á sunnudagskvöld og gilti þar til mánudagsmorguns. Það tók síðan gildi að nýju klukkan 20 í gærkvöldi. Lögreglan reyndi að dreifa mannfjöldanum og var því svarað með flugeldaskotum og eins köstuðu mótmælendur vatnsflöskum í átt að lögreglu. Í kjölfarið beitti lögregla táragasi til að reka fólk í burtu frá dómshúsi borgarinnar. Síðar kveiktu einhverjir mótmælendur í húsi þar skammt frá og eyðilögðu ljósastaura.
Blake var fluttur alvarlega særður með sjúkraflugi á sjúkrahús í Milwaukee. Síðdegis í gær sögðu ættingjar að líðan hans væri betri að loknum skurðaðgerðum.
Í myndskeiði sem hefur verið dreift á samfélagsmiðlum sjást lögreglumenn beina byssum sínum að manninum þar sem hann gengur hringinn í kringum skutbifreið sem stendur fyrir utan íbúðarhús. Þegar hann opnar dyr bifreiðarinnar og beygir sig sést lögreglumaður þrífa í bol hans og skjóta. Á myndskeiðinu má heyra sjö skothvelli á sama tíma og óp og öskur heyrast í fólki allt í kring.