Segir son sinn lamaðan fyrir neðan mitti

Mótmælt var í gær í Kenosha, Wisconsin, í kjölfar þess …
Mótmælt var í gær í Kenosha, Wisconsin, í kjölfar þess að Jacob Blake var skotinn 7 sinnum af lögreglu. AFP

Jacob Blake, 29 ára gamall Bandaríkjamaður sem var skotinn sjö sinnum í bakið af lögreglu á sunnudag, er lamaður fyrir neðan mitti að sögn föður hans. 

Í kjölfar skotárásarinnar hafa mótmæli sprottið upp í Kensosha í Wisconsinríki þar sem atvikið átti sér stað. Blake var óvopnaður og á leið í bifreið sína þegar lögregla skaut hann. 

Samkvæmt BBC hefur faðir Blakes nú greint frá því að sonur hans hafi orðið fyrir mænuskaða vegna skotanna. Ekki er vitað hvort lömunin sé varanleg. 

„Hvað réttlætti þessi skot? Hvað réttlætti að gera þetta fyrir framan barnabörnin mín? Hvað erum við að gera?“ spurði Jacob Blake eldri í samtali við fjölmiðla vestanhafs. 

Bla­ke var flutt­ur al­var­lega særður með sjúkra­flugi á sjúkra­hús í Milwaukee. Síðdeg­is í gær sögðu ætt­ingj­ar að líðan hans væri betri að lokn­um skurðaðgerðum. 

Í mynd­skeiði sem hef­ur verið dreift á sam­fé­lags­miðlum sjást lög­reglu­menn beina byss­um sínum að mann­in­um þar sem hann geng­ur hring­inn í kring­um skut­bif­reið sem stend­ur fyr­ir utan íbúðar­hús. Þegar hann opn­ar dyr bif­reiðar­inn­ar og beyg­ir sig sést lög­reglumaður þrífa í bol hans og skjóta. Á mynd­skeiðinu má heyra sjö skot­hvelli á sama tíma og óp og ösk­ur heyrast í fólki allt í kring.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert