Yfirvöld í Kaliforníu segja að upptök eins af mörgum skógareldum í ríkinu megi rekja til kynjaveislu, þar sem gestum er greint frá kyni barns.
Reykvél sem var notuð í veislunni varð til þess að eldur braust út í El Dorado sem nú hefur breiðst út á svæði sem nær yfir um sjö þúsund ekrur og er einn af yfir tuttugu skógareldum í Kaliforníu, að sögn BBC.
#ElDoradoFire | SAN BERNARDINO/ INYO/ MONO UNIT |
— CAL FIRE (@CAL_FIRE) September 7, 2020
El Dorado Fire Cause pic.twitter.com/PNBQWMXMwK
Mikil hitabylgja gengur nú yfir Kaliforníu. Í borginni Los Angeles fór hitinn upp 49,4 gráður á celsíus.
Bandaríska veðurstofan sagði gærdaginn „einn af heitustu dögunum síðan veðurathuganir hófust víðs vegar um suðvesturhluta Kaliforníu“.
Í síðasta mánuði mældist 54,4° hiti í Dauðadalnum í ríkinu, sem gæti verið hæsta hitastigið sem hefur mælst í veðurathugunum á jörðinni.
Þyrlur björguðu um helgina yfir 200 manns sem lokuðust inni í skógareldum á vinsælu útivistarsvæði við Mammoth Pool-uppistöðulónið. Að minnsta kosti 20 slösuðust, þar af einhverjir sem hlutu brunasár.
As multiple wildfires burn in California, one of the fires was started during a gender reveal party, officials said.
— CNN (@CNN) September 7, 2020
A "smoke generating pyrotechnic device" used at the party caused the El Dorado Fire in San Bernardino County, Cal Fire said. https://t.co/WEbAd3nwr6