Í ávarpi sem hún beindi að stjórnvöldum í Póllandi sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), að „hinseginlaus“ svæði ættu ekki heima innan ESB.
„Ég mun ekki láta staðar numið þegar kemur að því að byggja upp samband jafnréttis,“ lofaði Leyen í ræðu sinni.
Hún kallaði eftir sambandi þar sem „þú getur verið sá sem þú vilt og elskað hvern sem þú vilt án þess að þurfa að óttast ávítur eða mismunun“.
„Vegna þess að það að vera þú sjálfur er ekki þín hugmyndafræði. Það er sjálfsmynd þín. Enginn getur nokkurn tímann tekið hana burt. Ég vil hafa það alveg á hreinu að hinseginlaus svæði eru svæði án mennsku. Og þau eiga ekki erindi í sambandið okkar,“ sagði Leyen.
Staða hinsegin fólks í Póllandi hefur farið versnandi undanfarið. Forseti Póllands, Andrzej Duda, var endurkjörinn forseti landsins í kosningum sem fram fóru í júlí síðastliðnum. Ekki er langt síðan hann líkti hugmyndafræði hinsegin fólks, LGBTQI, við kommúnisma.
Í ágúst handtók lögreglan í Varsjá í Póllandi þrjá sem grunaðir eru um að hafa hengt regnbogafána á styttur í borginni. Voru þremenningarnir ákærðir fyrir að vanhelga stytturnar og misbjóða trúarlegum skoðunum.
Í júlí á síðasta ári var hinsegin fólk í Póllandi grýtt í gleðigöngu.