Fjórir særðir eftir hnífaárás í París

Franska lögreglan og hermenn á vettvangi í morgun.
Franska lögreglan og hermenn á vettvangi í morgun. AFP

Fjór­ir særðust, þar af tveir al­var­lega, í hnífstungu­árás í Par­ís skammt frá fyrr­ver­andi hús­næði franska tíma­rits­ins Charlie Hebdo.

Heim­ild­armaður sem teng­ist rann­sókn­inni greindi AFP-frétta­stof­unni frá þessu.

Ástand tveggja fórn­ar­lambanna er al­var­legt, að sögn lög­regl­unn­ar í Par­ís. Tveir eru grunaðir um árás­ina og hef­ur ann­ar þeirra verið hand­tek­inn. 

Rétt­ar­höld yfir 14 mann­eskj­um sem eru ákærðar fyr­ir að hafa aðstoðað víga­menn­ina sem réðust inn á rit­stjórn­ar­skrif­stof­ur Charlie Hebdo og mat­vörumarkað gyðinga í Par­ís í janú­ar 2015 hóf­ust fyrr í mánuðinum. 

Upp­fært kl. 11:13:

Maður­inn sem var hand­tek­inn er sá eini sem er grunaður um árás­ina. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert