Pólskur hjúkrunarfræðingur hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Þýskalandi fyrir að hafa drepið að minnsta kosti þrjár manneskjur með því að gefa þeim of stóran skammt af insúlíni.
Maðurinn, sem heitir Grzegorz Stanislaw W. og er 38 ára gamall, hlaut þyngsta dóm sem í boði var. Líklega mun hann eyða því sem eftir er ævinnar á bak við lás og slá.
Hann var upphaflega sakaður um sex morð en ekki fundust næg sönnunargögn til að sakfella hann fyrir þrjú þeirra.
Maðurinn neitaði að tjá sig á meðan á réttarhöldunum stóð en bað ættingja fórnarlamba sinna afsökunar í dag og sagðist iðrast gjörða sinna. „Það sem ég gerði var mjög grimmilegt og verður áfram grimmilegt,“ sagði hann.
Máli Stanislaws þykir svipa til þess er hjúkrunarfræðingurinn og raðmorðinginn Niels Hoegel hlaut lífstíðardóm fyrir að verða 85 sjúklingum að bana.