Heathrow-flugvöllur í Lundúnum hefur tekið upp skyndiskimanir fyrir Covid-19 á flugvellinum þar sem niðurstöður úr prófi koma innan klukkustundar. Er þetta gert til að liðka fyrir ferðalögum og viðskiptum.
Farþegar munu þurfa að greiða 80 pund, jafnvirði um 14.400 íslenskra króna, fyrir prófið. Fyrst um sinn er það eingöngu í boði fyrir farþega á leið til Ítalíu og Hong Kong.
Farþegar munu þurfa að skrá sig í væntanleg „skyndipróf“ á netinu áður en þeir koma á flugvöllinn.
Framleiðendur segja að með þessu sé mikilvægt skref tekið til að koma krafti í flugsamgöngur og hvetja fólk til ferðalaga.
Í frétt AFP kemur fram að Ítalía og Hong Kong krefji farþega um neikvætt Covid-19-próf og því taki farþegar á leið þangað „skyndiprófin“.