Sjö manns, þar á meðal tveir nemendur í skólanum þar sem sögukennari var afhöfðaður fyrir helgi, hafa verið ákærðir í tengslum við morðið. Nemendurnir eru sakaðir um að hafa bent ódæðismanninum á Samuel Paty, franska sögukennarann.
Sjömenningarnir verða ákærðir fyrir „samsæri um að fremja hryðjuverk“.
Paty, hafði sýnt skopmyndir af Múhameð spámanni í tengslum við kennslu um ákvæði stjórnarskrárinnar um tjáningarfrelsið.
Árásarmaðurinn, Abdoulakh Anzorov, var skotinn til bana af lögreglu eftir árásina á föstudag. Hann var 18 ára gamall og hafði búið í Frakklandi ásamt fjölskyldu sinni frá sex ára aldri. Abdoulakh Anzorov var fæddur í Moskvu en átti ættir að rekja til Tsjetsjeníu.
Jean-Francois Ricard, saksóknari hryðjuverkamála í Frakklandi, segir ungmennin, sem eru á bilinu 14-15 ára, hluta af hópi sem hafi deilt um það bil 350 evrum sem morðinginn bauð þeim fyrir að benda á kennarann.
Ungmennin sem eru ákærð biðu með hinum 18 ára gamla morðingja, Abdullakh Anzorov, í meira en tvær klukkustundir eftir að Paty kæmi út úr skólanum síðastliðinn föstudag.
Samkvæmt saksóknara biðu nemendurnir með árásarmanninum þrátt fyrir orð hans um að vilja hafa hendur í hári kennarans vegna myndasýningarinnar.
Aðrir ákærðir eru faðir stúlku við skólann en hann kynnti undir ófriðarbáli gegn kennaranum með ítrekuðum skilaboðum á samfélagsmiðlum og YouTube þar sem hann hvatti til aðgerða gegn kennaranum, þekktur íslamskur öfgamaður og þrír vina Anzorov.