Yfir 100 þúsund manns mótmæltu á götum Minsk, höfuðborgar Hvíta-Rússlands, í dag.
Svetlana Tsikanovskaja, leiðtogi hvítrússnesku stjórnarandstöðunnar, gaf forseta landsins, Alexander Lúkasjenkó, tveggja vikna frest til að segja af sér, binda enda á lögregluofbeldi og frelsa pólitíska fanga, annars yrðu víðtæk verkföll í landinu.
Fresturinn rann út í dag.
Lögreglan beitti táragasi til að dreifa mannfjöldanum og tæplega 100 manns voru handtekin samkvæmt heimildum frá mannréttindasamtökunum Vesna.
Í myndböndum og á myndum sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum má sjá rútur með öryggisvörðum vopnuðum járnskjöldum koma niður í miðborg Minsk.
Fjölda lestarstöðva í miðborginni var lokað til að reyna að koma í veg fyrir mótmælin og aðgengi að netinu var takmarkað.
Tsikanovskaja flúði landið eftir forsetakosningarnar sem fóru fram í ágúst. Hörð mótmæli hafa farið fram í landinu eftir kosningarnar en mótmælendur koma yfirleitt saman á sunnudögum. Lúkasjenkó sigraði kosningarnar en mótmælendur og stjórnarandstaðan í Hvíta-Rússlandi hafa sakað hann um kosningasvindl. Lúkasjenkó sór embættiseið fyrir luktum dyrum í lok september.
Tsikanovskaja hefur heimsótt leiðtoga ýmissa Evrópuríkja undanfarið og beðið um stuðning.