Yfir hálf milljón barna yngri en fimm ára býr við alvarlega hungursneyð í Jemen en ástandið hefur aldrei verið jafn alvarlegt í landinu að því er fram kemur í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna.
Ástandið hefur versnað enn frekar að undanförnu vegna kórónuveirufaraldursins og erfiðleika við að safna fé til hjálparstarfsins.
Í skýrslunni kemur fram að tölurnar eigi við börn í suðurhluta landsins og ekki megi búast við öðru en að staðan sé álíka slæm í norðurhluta landsins. Unnið er að rannsókn á stöðunni þar.
Að minnsta kosti 98 þúsund börn yngri en fimm ára eru við það að svelta í hel í suðurhluta Jemen segir í skýrslunni sem unnin er af Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og barnahjálp SÞ (UNICEF).
Lisa Grande, sem fer með mannúðarmál í Jemen fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna, segir að þessar tölur staðfesti að aldrei hafi fleiri börn í Jemen þjáðst af vannæringu frá því stríðið hófst þar í landi árið 2014. Yfir 24 milljónir landsmanna, sem eru tæplega 80% íbúa Jemen, reiða sig á einhvers konar neyðaraðstoð til að lifa af. Í ár hefur ástandið versnað hratt.
Í júlí varaði SÞ við því að einn af hverjum níu íbúum heimsins byggi við hungur á sama tíma og farsótt geisar og náttúruhamfarir eru tíðari af völdum loftslagsbreytinga.