Joe Biden sendi stutta yfirlýsingu frá sér á Twitter eftir að allar helstu fréttastofur landsins lýstu hann sigurvegara forsetakosninganna fyrr í dag. Sagði Biden þar að það væri heiður fyrir sig að kjósendur hefðu valið sig til að leiða Bandaríkin.
Sagði hann að fram undan væri mikil vinna. „En ég lofa ykkur þessu: Ég ætla að vera forseti allra Bandaríkjamanna – hvort sem þú greiddir mér atkvæði eða ekki.“