Að minnsta kosti fjórar manneskjur drukknuðu er bát hvolfdi skammt frá strönd Lanzarote, einni af Kanaríeyjunum, í gærkvöldi. Óttast er að þrír hafi drukknað til viðbótar en þeirra er enn leitað.
Alls voru rúmlega 30 flóttamenn um borð í bátnum er honum hvolfdi skammt fyrir utan fiskimannaþorpið Orzola á norðurhluta eyjunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni tókst fimm bátsverjum að komast að landi en 15 var bjargað úr sjónum.
Yfirmaður almannavarna á Lanzarote, Enrique Espinosa, segir að 28 hafi komist lífs af úr sjávarháskanum en óttast er um afdrif þriggja.
Yfir 18 þúsund einstaklingar hafa komið að landi á Kanaríeyjum í ár og meirihluti þeirra undanfarna tvo mánuði. Fólkið kemur frá Afríku og er að reyna að komast til Evrópu í leit að bættu lífi. Stefnt er að því að setja upp flóttamannabúðir á eyjunum og hefja viðræður við yfirvöld í nokkrum ríkjum Afríku í þeirri von að hægt sé að draga úr komu flóttafólks til eyjanna að því er segir í frétt AFP.