Aðstandendur þeirra sem létust í banvænum flugslysum þar sem Boeing 737-MAX vélar hröpuðu er ósáttir með nýútgefið flugleyfi vélanna. Hafa fjölskyldur fórnarlamba farið fram á að flugleyfið verði afturkallað strax.
Flugmálayfirvöld vestanhafs afléttu um 20 mánaða kyrrsetningu vélanna í nóvember. Segir m.a í umsögninni að lagfærðingar hafi verið gerðar og vélarnar eigi því að vera öruggar. Ekki eru þó allir sammála því.
Í skýrsu viðskiptanefndar Öldungardeildarþings Bandaríkjanna eru sett spurningamerki við ákveðin atriði í yfirferð flugmálayfirvalda. Þar kemur einnig fram að flugmenn hafi ekki fengið „viðeigandi þjálfun“ á búnað MAX-vélanna.
Í kjölfar skýrslunnar sendu fjölskyldur fórnarlambanna bréf til flugmálayfirvalda vestanhafs. Krefjast þær að vélarnar verði kyrrsettar að nýju, eða þar til búið er að fara rækilega í gegnum alla ferla að nýju.