Þegar lögreglumaður skaut hinn 29 ára gamla Jacob Blake sjö sinnum í bakið í Kenosha í Wisconsin-ríki í ágúst, jós hann olíu á ört vaxandi eld óánægju og reiði almennings vegna ofbeldisverka lögreglumanna gagnvart svörtum um öll Bandaríkin. Mótmælaalda og glundroðaástand fylgdi.
Í myndbandi New York Times er sýnt frá atburðunum en skothríð lögreglumannsins náðist á myndband og dreifðist hratt á samfélagsmiðlum. Mótmælendur mættu vopnuðum hópi fólks sem hugðist vernda verðmæti og koma í veg fyrir skemmdarverk. Þungvopnaðir óeirðalögreglumenn skutu táragasi á hópinn. Myndir af vettvangi eru táknrænar fyrir ástandið sem ríkti í Bandaríkjunum á árinu sem er að líða.
mbl.is mun á milli jóla og nýárs birta umfjallanir sem New York Times hefur gert fyrir alla mánuði þessa viðburðaríka árs. Kórónuveiran er þar fyrirferðarmikil en önnur stór fréttamál á árinu eru einnig til skoðunar líkt og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.