Annar fannst látinn í Noregi

AFP

Annar hefur fundist látinn á björgunarsvæðinu í bænum Ask í Gjerdrum í Noregi í dag. Jarðfall varð í bænum aðfararnótt miðvikudags. Einn fannst látinn í gær. Átta er enn saknað. Ekki hefur verið upplýst um aldur eða kyn þess látna, hvorki þess sem fannst í gær né í dag. 

Björgunaraðilar hafa í dag stækkað leitarsvæðið. Enn er haldið í vonina um að fólk eigi eftir að finnast á lífi. 

Frétt af mbl.is

Samkvæmt NRK fundu leitarhundar líkamsleifarnar í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert