Fjórir hafa fundist látnir í Noregi

Leit er í fullum gangi í Ask í Noregi.
Leit er í fullum gangi í Ask í Noregi. AFP

Fjórða manneskjan hefur fundist látin í norska bænum Ask þar sem mikið jarðfall varð fyrr í vikunni. Sex er enn saknað.

Líkið fannst á sama svæði og síðustu tvö hafa fundist, að sögn norska ríkisútvarpsins. 

Fyrsta manneskjan fannst aftur á móti í um 50 metra fjarlægð í öðrum húsarústum.

Lögreglan hefur flutt í burtu alla sem hafa fundist látnir. Leit heldur áfram á svæðum þar sem talið er öruggt að leita. Til aðstoðar björgunarsveitum eru leitarhundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert