Múgur braust inn í þinghúsið

Óeirðir brutust út á Capitol Hill í Washington í dag þar sem Bandaríkjaþing er til húsa þegar stuðningsmenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta brutu sér leið inn í bygginguna. Lögreglan beitti skotvopnum og táragasi á hópinn.  AFP hefur eftir þingmönnum að um „valdarán“ sé að ræða. 

Neðst í fréttinni má sjá beina fréttalýsingu mbl.is frá atburðunum vestra.

Sameiginlegur þingfundur fulltrúadeildarinnar og öldungadeildarinnar stendur yfir, en hlé hefur nú verið gert á fundahöldum. 

Á myndum má sjá mótmælendur halda á skotvopnum inni í þinghúsinu. Þeir halda því fram að brögð hafi verið í tafli þegar Trump beið ósigur fyrir Joe Biden í forsetakosningunum sem fóru fram í nóvember sl.

Lögregla hafði girt þinghúsið af eftir að til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda. Stuðningsmenn Trumps hafa mótmælt fyrirhugaðri staðfestingu Bandaríkjaþings á forsetakosningunum sem fram fóru í nóvember síðan snemma í dag.

Í beinni útsendingu ABC-fréttastöðvarinnar af óeirðunum kemur fram að lögreglumenn innan þinghússins séu mun færri en mótmælendur. Er nú unnið að því að koma fleiri lögregluþjónum á svæðið. Þá er fullyrt á ABC að nú sé unnið að rýmingu þinghússins. Varaforseti Bandaríkjanna Mike Pence hefur þegar verið fluttur af svæðinu. 

Samkvæmt heimildum ABC í þinghúsinu hafa mótmælendur, sem eru nú staddir á þriðju hæð, gengið á milli skrifstofa þingmanna og kallað „hvar í fjandanum eru þau“. 

„Þetta er ekki Úkraína, þetta er ekki Hvíta-Rússland, þetta er þinghús Bandaríkjanna,“ sagði fréttamaður ABC. 

BNO News greinir frá því á Twitter að einn hafi verið skotinn. 

CNN greinir frá því að kona sé alvarlega slösuð eftir að hafa orðið fyrir skoti.  

Muriel Bowser, borgarstjóri í Washington D.C., hefur fyrirskipað útgöngubann í borginni eftir að mótmælendur brutu sér leið inn í þinghúsið. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur kallað til þjóðvarðlið vegna mótmælanna.

Blaðamaðurinn Matt Fuller segir á Twitter að mótmælendurnir hafi skotið inni í þingsal. 

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á Twitter að lögreglan „er raunverulega með ykkur í liði“ og hvatti mótmælendur til að vera friðsamir.

mbl.is

Við þökkum fyrir samfylgdina, umfjölluninni hefur lokið.

Lokum hér

Við þökkum fyrir samfylgdina á þessu feedi.

Áfram verður fylgst með gangi mála á mbl.is en við lokum hér að sinni.

FBI óskar eftir aðstoð almennings

Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur óskað eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á þá sem tóku þátt í óeirðunum sem enduðu með því að múgur braust inn í bandaríska þinghúsið í Washington.
Meira »

Þingmaður repúblíkana kennir ANTIFA um

Mo Brooks er þingmaður repúblíkana í fulltrúadeild. Á twitter reikningi sínum heldur hann því fram að fólkið sem braust inn í þinghúsið hafi ekki verið komin til þess að styðja Trump heldur til þess að valda óeirðum og koma óorði á stuðningsmenn Trumps.
Hann vill þó að allir sem þátt tóku verði sóttir til saka.


Hluti skemmdarverka

Myndir frá CNN fréttastofu af hluta skemmdarverka sem unnin voru á þinghúsinu í gær.

Hvar gerðist hvað í húsinu?

Yfirlitsmynd af þinghúsinu í Washington

Hver er maðurinn með hornin?

Maðurinn á fréttamyndunum á allra vörum, klæddur eða ekki klæddur sem einhvers konar hyrnt dýr, andlitið þakið bandarísku fánalitunum, heitir Jake Angeli, 32 ára þekktur öfgahægrimaður frá Arizona.
Meira »

Átti að taka gísla?

Truflandi myndir af gálga sem reistur var fyrir utan þinghúsið í Washington í gær ganga nú á netinu. Einnig eru myndir af þátttakendur í innrásinni eru sagðir tilbúnir undir gíslatöku.

Mótmælin borin saman við BLM

Viðbrögð og viðvera lögreglu og yfirvalda er mikið borin saman á samfélagsmiðlum við önnur mótmæli. Miklar umræður hafa myndast á samfélagsmiðlum um skotvopnanotkun og sjónarmiðum velt upp hvort viðbrögðin yrðu þau sömu við Black Lives Matter mótmælum eða loftslagsmótmælum.





Boðflennur í vígahug - fréttaljósmyndir

Stuðningsmenn Donalds Trumps, fráfarandi Bandaríkjaforseta, fjölmenntu í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, í gær þar sem þingið kom saman til að staðfesta úrslit kosninganna sem fóru fram í nóvember. Upp úr sauð í gærkvöldi þegar æstur múgur réðist inn í þinghúsið.
Meira »

Starfsmenn þingsins björguðu atkvæðaseðlum

Starfsmenn öldungadeildar þingsins eru sögð hafa verið snör í snúningum og sýnt hetjudáð þegar ljóst væri að þingsalurinn væri í hættu og haldið á brott með kjörmannaatkvæðaseðlana.



Cori Bush safnar undirskriftum

Fulltrúadeildarþingkonan Cori Bush hefur hafið undirskirftarsöfnun þar sem krafist er afsagnar allra fulltrúa Repúbíkana sem tóku þátt í valdránstilrauninni.

Spjallþáttastjórnendur lýsa yfir reiði

Angela Merkel segir Trump deila ábyrgð

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í dag að hún væri bálreið og leið yfir fréttum af múgi stuðningsmanna Donalds Trumps sem réðst inn í þinghúsið í Washington í gær. Hún sagði Donald Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, deila ábyrgð á óróanum sem nú ríkti vestra.
Meira »

Hvernig gat þetta gerst?

Hörmulegur öryggisbrestur varð í viðbrögðum við árás stuðningsmanna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á bandaríska þinghúsið í Washington í gær. Borgin er nú þegar í viðbragðsstöðu og starfa 2.000 lögreglumenn hjá þinghúsinu. Samt sem áður náði fólk að þvinga sig inn í helgidóm bandarísks lýðræðis með ekkert annað en flaggstangir, skildi og skóflur að vopni.
Meira »
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert