Raddirnar munu heyrast um ókomin ár

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, segir að raddir þeirra 75 milljóna bandarískra föðurlandsvina sem hafi greitt honum atkvæði muni heyrast um ókomin ár.

„Þeir verða ekki vanvirtir og munu ekki fá ósanngjarna meðferð á nokkurn einasta hátt!“ skrifaði forsetinn á Twitter.

Forsetinn hefur verið sakaður um að hafa hvatt til óeirðanna sem urðu í bandaríska þinghúsinu í fyrrakvöld þegar æstur múgur ruddist þangað inn.

Eftir að hafa talað vel um mótmælendurna í upphafi og sagst elska þá fordæmdi hann fólkið í ávarpi sínu á Twitter í morgun og sagði að það myndi gjalda fyrir gjörðir sínar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert