Ekki verður hægt að fljúga til Bretlands frá og með mánudegi nema að framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi áður en haldið er upp í flugvél. Boris Johnson forsætisráðherra tilkynnti um þessar breytingar í dag, föstudag, og verða þær í gildi til 15. febrúar hið minnsta.
Sömuleiðis verður öllum farþegum, sama hvaðan þeir koma, gert að fara í tíu daga sóttkví við komuna til landsins. Hingað til hafa farþegar frá löndum þar sem lítið er um kórónuveirusmit, svo sem Íslandi, sloppið við sóttkvína.
Í dag tók einnig gildi bann við komu ferðamanna frá Suður-Ameríku og Portúgal til landsins, en það er sett af ótta við nýtt kórónuveiruafbrigði, sem kennt hefur verið við Brasilíu.
Johnson sagði á blaðamannafundi í dag að mikilvægt væri að bregðast skarpt við nú á sama tíma og Bretar næðu jafnt og þétt árangri í bólusetningum. „Það er einmitt út af von okkar um bóluefnið, og áhættunni af nýju afbrigði veirunnar frá útlöndum sem við bregðumst við með þessum hætti til að halda afbrigðunum utanlands.“