Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson vottaði í kvöld fjölskyldu Sergi Mingote samúð sína, en Mingote lést á K2 í gær þegar hann var á leið niður í þriðju búðir ásamt félögum sínum. John Snorri segir daginn hafa verið tilfinningaþrunginn.
Hann féll á leiðinni og var úrskurðaður látinn skömmu síðar. Forystumenn í spænskum stjórnmálum syrgðu Mingote á samfélagsmiðlum, enda þjóðþekktur og sömuleiðis virkur í stjórnmálum fyrir sósíalista.
Spánverjinn var á þessu öðru hæsta fjalli heims í von um að ná þeim sögulega áfanga að komast upp á topp að vetri til. Annar hópur varð fyrri til með það markmið í morgun. Þar var hópur nepalskra manna á ferð undir forystu Mingma Gyabu Sherpa, heimsfrægs fjallagarps. John Snorri er einnig staddur á K2.
„Ég naut þeirra forréttinda að þekkja frækna fjallgöngumanninn Sergei Mingote. Við hittumst fyrst í Nepal þegar ég kleif Manaslu árið 2019. Við höfðum þegar ákveðið að hittast í Ölpunum á næsta ári og klifra saman,“ skrifar John Snorri á Facebook.
„Kæri vinur þú skilur eftir þig stórkostleg afrek í heimi fjallaklifursins og þín verður minnst fyrir afrek þín og anda,“ skrifar John Snorri.
Today was emotional day on the mountain K2. I had the privilege to know the great mountaineer Sergi Mingote. We first...
Posted by John Snorri on Laugardagur, 16. janúar 2021