Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní var handtekinn skömmu eftir komuna til Moskvu í Rússlandi í kvöld. Hann var um borð í flugi frá Berlín sem var vísað á annan flugvöll en upphaflega stóð til eftir að stuðningsmenn hans hópuðust saman á flugvellinum.
Lögreglan í Moskvu hefur staðfest að Navalní hafi verið færður í varðhald, en viðbúið var að svo færi.
„Alexei var fluttur í burtu af lögreglu á flugvellinum. Án nokkurra skýringa,“ segir Kira Yarmysh, talskona Navalní.