Fleiri en 100.000 hafa nú fallið frá í Bretlandi vegna Covid-19. Forsætisráðherra landsins segist taka „fulla ábyrgð“ á aðgerðum ríkisstjórnarinnar í faraldrinum.
„Við gerðum sannarlega allt sem við gátum,“ sagði Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands vegna þessa í dag. „Ég er miður mín yfir hverju einasta lífi sem hefur tapast.
Alls hafa 100.162 dauðsföll verið skráð í Bretlandi vegna Covid-19. Engin önnur Evrópuþjóð hefur skráð fleiri dauðsföll vegna Covid-19 en Bretar. Fjögur önnur lönd í heiminum hafa skráð fleiri en 100.000 dauðsföll vegna Covid-19 en þau eru Bandaríkin, Brasilía, Indland og Mexíkó.
Á blaðamannafundi í dag sagði Johnson að það væri erfitt „að gera grein fyrir sorginni sem fælist í þessari dapurlegu tölfræði“. Þá sendi hann þeim sem misst hafa ástvini sínar dýpstu samúðarkveðjur.
Verulegur uppgangur hefur verið í faraldrinum í Bretlandi undanfarið og er bráðsmitandi afbrigði veirunnar sérstaklega kennt um þá þróun.