Ríkisstjórn Danmerkur hefur komist að samkomulagi við flesta flokka á danska þinginu um greiðslu skaðabóta til handa minkabændum í landinu í skaðabætur fyrir að hafa gert út af við iðnaðinn í kórónuveirufaraldrinum. DR greinir frá.
Alls getur fjárhæð bótanna numið 18,8 milljörðum danskra króna (397 mö. ISK) og er það umtalsvert meira en ríkisstjórnin hafði fyrst boðið minkabændum.
Ríkisstjórn Danmerkur fyrirskipaði í nóvember að öllum minkum í landinu skyldi slátrað eftir að tólf manns greindust smitaðir af stökkbreyttu afbrigði kórónuveirunnar sem rakið er til minkabús á Norður-Jótlandi. Síðar kom í ljós að ríkisstjórnin hafði ekki haft lagaheimild fyrir tilskipuninni sem þá var breytt í tilmæli, áður en tilskipuninni var veitt lagastoð. Fór svo að landbúnaðarráðherrann sagði af sér vegna málsins.
Danir voru stærsti framleiðandi minkaskinns í heiminum og stóðu undir 40 prósentum af heimsframleiðslunni. Tvöfalt fleiri minkar en menn bjuggu í Danmörku, áður en nokkrir þeirra nældu sér í Covid, en í kjölfarið var minkahald bannað til ársloka 2021. Innifalið í bótafjárhæð er styrktarkerfi sem ætlað er að hjálpa minkabændum að hefja starfsemi á ný þegar banninu sleppir.