„Við söknum merks manns. Hann er mjög fær fjallamaður,“ sagði Thaneswar Guragai í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í kvöld en fyrirtæki hans hefur tekið þátt í leitinni að John Snorra Sigurjónssyni, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á fjallinu K2 um helgina.
Ekkert hefur spurst til fjallgöngumannanna síðan klukkan fimm á föstudagsmorgun að íslenskum tíma en leit verður haldið áfram á morgun.
Tvær pakistanskar herþyrlur hafa leitað fjallgöngumannanna í eins mikilli hæð og þyrlurnar þola, 7.800 metra hæð. Þegar seinast heyrðist frá John Snorra og félögum voru þeir í um 8.200 metra hæð.
Ekki hefur verið hægt að senda reynda fjallgöngumenn upp fjallið vegna veðurs en Thaneswar segir mikinn vindhraða og tæplega 70 gráðu frost nálægt toppi fjallsins.
Hann telur ólíklegt að John Snorri, Ali og Mohr séu í fjórðu búðum en vonar að þeir hafi komist niður í þriðju búðir. Hann ætlar ekki að gefa upp vonina, hún sé það síðasta sem glatist.