Lyfjafyrirtækið AstraZeneca, í samstarfi við Oxford-háskóla, telur sig geta breytt bóluefni sínu gegn kórónuveirunni þannig að það veiti ónæmi gegn suðurafrísku afbrigði veirunnar. Áformað er að hin nýja gerð verði tilbúin til notkunar í haust.
Fregnir höfðu borist um að rannsókn sýndi að bóluefni AstraZeneca og Oxford-háskóla veitti minna ónæmi gegn suðurafríska afbrigðinu.
Rannsóknin var framkvæmd af Witwatersrandháskóla í Jóhannesarborg, en hún hefur ekki enn verið ritrýnd. AstraZeneca svaraði þó fyrir sig og sagði ekki eina manneskju af þeim tvö þúsund sem þátt tóku í rannsókninni hafa þróað með sér alvarleg sjúkdómseinkenni. Meðalaldur þátttakenda í rannsókninni var 31 ár.
„Við erum með nýja gerð í vinnslu sem hefur prótín úr suðurafríska veiruafbrigðinu,“ sagði Sarah Gilbert við fréttamenn BBC, en það er AP-fréttaveitan sem greinir frá.