Aldrei áður hafa Rússar mótmælt stjórn Vladimírs Pútíns jafn kröftuglega og eftir að helsti stjórnarandstæðingur landsins, Alexei Navalní, var handtekinn og fangelsaður. Nýverið var myndskeiði lögreglunnar lekið á netið en þar sést stjórnarandstæðingi haldið yfir matarskál hunds.
BBC ákvað að hafa uppi á mótmælandanum sem sést á myndskeiðinu, Gennady Shulga, sem er búsettur í Vladivostok, í tæplega 6.500 km fjarlægð frá Moskvu.
Shulga telur að myndskeiðinu hafi verið lekið á netið til að hræða fólk frá því að taka þátt í mótmælum. Að sýna fólki hvað yfirvöld geti gert.
Við réttarhöldin í Moskvu í gær var Navalní haldið í glerbúri allan daginn en hann hefur nýtt langa daga í réttarsölum undanfarnar vikur til að gagnrýna Pútín harðlega og hvetja stuðningsfólk sitt til dáða. Nú er Navalní fyrir rétti ákærður fyrir að lítilsvirða stríðshetju.