Lögreglu og mótmælendum lenti saman í spænsku borgunum Madríd og Barcelona í kvöld þar sem fólk kom saman til að mótmæla fangelsisvist rapparans Pablo Hasel.
Hasel var dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir Twitter-færslur og texta í lögum sínum þar sem hann var sagður upphefja hryðjuverkastarfsemi auk þess sem hann var sakaður um meiðyrði gagnvart spænsku krúnunni og ríkinu.
Samkvæmt frétt AFP komu nokkur hundruð mótmælendur saman á torgi í Madríd þar sem lausnar Hasel var krafist. Stórir borðar þar sem ritskoðun var mótmælt voru sjáanlegir.
Grímuklæddir mótmælendur hentu flöskum í átt að lögreglu og lögregla skaut gúmmíkúlum í átt að hópi mótmælenda.
Svipað var uppi á teningunum í Barcelona en alls voru sex handteknir í kvöld.
Hasel var handtekinn í háskólanum í Lleida í Katalóníu í gær en þar hafði hann lokað sig inni á mánudag til að forðast fangavist. Frestur Hasel til að gefa sig fram við lögreglu rann út á föstudaginn