Kína gæti ráðist inn í Taívan á næstu sex árum, telur flotaforingi í Bandaríkjaher. Hann sagði frá þessu á fundi þingnefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings.
Kínverjar leitast að hans sögn áfram við að grafa undan hernaðarlegum yfirburðum Bandaríkjamanna í Asíu og samhliða því er þeim hugleikið að hafa stjórn á Taívan, sem telur sig sjálfstætt ríki.
Vegna deilna um hvort Taívan sé í raun sjálfstætt ríki eða hérað í Kína, búa Taívanbúar við sífellda ógn frá meginlandinu í vestri.
„Ég hef áhyggjur af því að Kína sé að auka enn á áform sín um að bola Bandaríkjunum burt af svæðinu og þar með grafa undan leiðtogahlutverki okkar innan alþjóðasamfélagsins,“ sagði Philip Davidson flotaforingi.
„Taívan er klárlega eitt hugðarefna þeirra á því sviði. Og ég held að ógnin gæti tekið á sig mynd á þessum áratug, í raun og veru á næstu sex árum,“ sagði Davidson.
Joe Biden Bandaríkjaforseti tjáði heimsbyggðinni stuðning sinn við Taívan á dögunum til þess að gefa í skyn stefnu sína í málefnum er tengjast Kína og Suðaustur-Asíu, að því er sagði í frétt BBC. Í lok janúar var sagt frá því að Taívanir höfðu tilkynnt um fjölda kínverskra herflugvéla í taívanskri lofthelgi.