Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca eftir tilkynningar um alvarlegar aukaverkanir í tengslum við bólusetningar.
Fram kemur í frétt danska ríkisútvarpsins að fólk hafi fengið blóðtappa eftir bólusetningu og verður notkun bóluefnisins hætt í tvær vikur. Ein tilkynning varðar andlát.
Ekki er ljóst hvort tengsl eru á milli blóðtappa og bóluefnisins en notkun þess verður stöðvuð í það minnsta á meðan Lyfjastofnun Danmerkur ræðst í gerð nýs mats á efninu.
Eistland, Lettland, Lúxemborg og Litháen hafa einnig stöðvað notkun bóluefnis AstraZeneca á meðan málið er rannsakað.
Søren Brostrøm, landlæknir Danmerkur, segir að Danir standi í umfangsmestu bólusetningu í sögu landsins og því gefi það augaleið að ákvörðunin hafi ekki verið léttvæg.
Þeir sem hafi fengið fyrri sprautu af bóluefni AstraZeneca þurfi að bíða eftir seinni skammtinum.