Staðfest hefur verið að líkamsleifarnar, sem fundust í skóglendi síðasta miðvikudag í nágrenni Ashford í Kent, séu af Söruh Everard. Þetta segir á vef BBC.
Síðast sást til hinnar 33 ára Everard 3. mars þegar hún var á leið sinni heim í suðurhluta Lundúna. Ekki er vitað hvort hún náði til heimilis síns.
Lögreglumaður sem handtekinn var fyrr í vikunni vegna málsins situr enn í gæsluvarðhaldi en hann er grunaður um að hafa rænt Everard og myrt hana.
Á blaðamannafundi í gær sagði lögreglufulltrúinn Dame Cressida mannrán á götum úti afar sjaldgæf í London en vissulega væri skiljanlegt að konur sem búa í nágrenninu fyndu fyrir kvíða í kjölfar fréttanna.
Skipulagt var að halda minningarstund fyrir Everard en vegna Covid-19 hefur hópurinn „Endurheimtum göturnar“ (e. Reclaim These Streets) ekki fengið heimild til að halda minningarstundina.