Lögreglan í London segir það hafa verið nauðsynlegt að beita valdi á minningarathöfn um Söruh Everard í gærkvöldi til að tryggja öryggi almennings. Lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir valdbeitinguna en á minningarathöfninni mátti meðal annars sjá karlkyns lögreglumenn beita konur valdi til að halda aftur af þeim.
Hundruð brutu sóttvarnareglur í gær til að koma saman í Clapham-garðinum til að minnast Everard. Everard var að ganga heim frá íbúð vina þegar hún hvarf sporlaust á tíunda tímanum að kvöldi 4. mars. Á þriðjudag var 48 ára gamall lögreglumaður, Wayne Couzens, handtekinn á heimili sínu í Kent, í tengslum við rannsóknina. Lík Everard fannst í skóglendi þar skammt frá daginn eftir. Hann var ákærður fyrir morð á föstudag og leiddur fyrir dómara í gær.
Samtökin Reclaim These Streets hafa harðlega gagnrýnt aðgerðir lögreglu á minningarathöfninni í gær. Innanríkisráðherra Bretlands, Priti Patel, og borgarstjóri London, Sadiq Khan, hafa báðir krafist skýringa frá lögreglustjóranum í London, Cressidu Dick, en margir hafa krafist afsagnar hennar.
Einn undirmanna Dick, Helen Ball, sagði að lögreglan, sem áður hafði neitað beiðni um heimild fyrir minningarathöfninni, hafi þurft að bregðast við til að tryggja öryggi fólks.
Bell sagði að hættan á að dreifa kórónuveirusmiti hafi verið mikil þegar mörg hundruð manns hafi komið saman í garðinum.
„Við vildum alls ekki vera í þeirri stöðu að lögreglan þyrfti að beita valdi. En við vorum sett í þessar aðstæður vegna þess að það var nauðsynlegt að tryggja öryggi fólksins,“ sagði Bell.
Fjórir voru handteknir á minningarathöfninni, fyrir óspektir á almannafæri og fyrir að brjóta sóttvarnareglur.