Sóttvarnalæknir Bandaríkjanna segir að það myndi skipta sköpum ef Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hvetti repúblikana til að láta bólusetja sig við kórónuveirunni.
„Það myndi skipta öllu máli,“ sagði Anthony Fauci, sóttvarnalæknir Bandaríkjanna, við Fox News í gær, að því er BBC greindi frá. „Hann er mjög vinsæll á meðal repúblikana.“
Í nýlegri skoðanakönnun í Bandaríkjunum kom fram að allt að 49% karlmanna sem styðja Repúblikanaflokkinn vilja ekki láta bólusetja sig.
Á fundi íhaldsmanna í síðasta mánuði sagði Trump: „Drífið ykkur öll og látið bólusetja ykkur.“ Það var í fyrsta sinn sem hann hvatti fólk til þess. Hann hefur ekki viljað tjá sig um málið síðan þá.
Nýlega var greint frá því að fjórir fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna, þeir Barack Obama, George W. Bush, Bill Clinton og Jimmy Carter, myndu koma fram í nýrri auglýsingaherferð í Bandaríkjunum þar sem fólk er hvatt til að láta bólusetja sig. Eini fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sem er á lífi en tekur ekki þátt í herferðinni er Donald Trump.