„Á þriðjudag létust 3.158 manns í Brasilíu af völdum Covid-19. Þetta er stærsta þjóðarmorðið í sögu landsins,“ sagði Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrverandi forseti Brasilíu, í samtali við þýska vikuritið Der Spiegel. Rúmlega 300.000 manns hafa alls látist af völdum Covd-19 í Brasilíu.
Hann gagnrýndi Jair Bolsonaro, núverandi forseta landsins, harðlega og sagði hann hafa logið að brasilísku þjóðinni í faraldrinum.
Bolsonaro gagnrýndi í byrjun mánaðar aðgerðir sem beitt hefur verið til þess að hægja á útbreiðslu faraldursins og sagði fólki að „hætta að væla“ um Covid-19.
Skoðanakannanir í Brasilíu benda til þessa að Lula sé líklegastur til að velta Bolsonaro úr sessi í forsetakosningum á næsta ári.