Filippus prins er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu á facebooksíðu konungsfjölskyldunnar.
„Með mikilli sorg í hjarta hefur Englandsdrottning tilkynnt andlát eiginmanns síns, Filippusar prins, hertogans af Edinborg,“ segir í tilkynningunni.
Filippus lést í morgun í Windsor-kastala, 99 ára gamall. Hann var útskrifaður af King Edward VII-sjúkrahúsinu í London um miðjan síðasta mánuð eftir að hafa legið þar inni í 28 daga eftir að hafa gengist undir hjartaaðgerð.
Filippus hefði orðið 100 ára 10. júní næstkomandi.
Frekari tilkynningar frá konungsfjölskyldunni munu berast síðar. „Konungsfjölskyldan sameinast fólki um allan heim í sorg sinni,“ segir einnig í tilkynningunni.
Prince Philip, the husband of Britain’s Queen Elizabeth II, has died at 99, Buckingham Palace announces. Here is a look at his life. https://t.co/neib7KB6lP pic.twitter.com/2vaLiIyJD9
— CNN (@CNN) April 9, 2021