Armin Laschet, formaður Kristilegra demókrata í Þýskalandi, verður næsta kanslaraefni flokksins í þingkosningunum í september. Þetta herma heimildir AFP-fréttastofunnar. Auk Laschets hafði Markus Söder, forsætisráðherra Bæjaralands, boðið sig fram sem kanslaraefni Kristilegra demókrata (CDU). Söder er formaður systurflokks CDU í Bæjaralandi, CSU.
Þungavigtarfólk innan flokksins er á fundi í Berlín þar sem meðal annars er fjallað um þingkosningarnar í haust.
Fylgi Kristilegra demókrata í Þýskalandi hefur verið á niðurleið síðustu mánuði og hefur flokkurinn nýlega farið undir 30 prósent í könnunum á sama tíma og Græningjar eru á miklu flugi. Í Bæjaralandi nýtur Söder hins vegar mikils stuðnings.