Fyrrverandi lögreglumaðurinn Derek Chauvin var rétt í þessu fundinn sekur um morðið á George Floyd með því að hafa kropið á hálsi hans í níu mínútur og 29 sekúndur í maí á síðasta ári með þeim afleiðingum að Floyd lést.
Kviðdómur komst að þessari niðurstöðu fyrr í kvöld og var hún tilkynnt fyrir skömmu.
Komust kviðdómendur að þeirri niðurstöðu að Chauvin væri sekur um manndráp án ásetnings og um morð af annarri og þriðju gráðu. Kviðdómendur fundu hann því sekan af öllum ákæruliðum.
Chauvin, sem er hvítur karlmaður, sást á myndbandi þrýsta hné sínu aftan á háls Floyd, sem var handjárnaður, og tjáði hann Chauvin oft að hann næði ekki andanum. Floyd hafði verið handtekinn grunaður um að hafa framvísað fölsuðum 20 dala seðli.
Morðið vakti mikinn óhug og reiði um öll Bandaríkin og varð kveikjan að risavaxinni mótmælaöldu í Bandaríkjunum og víðar á Vesturlöndum, þar sem fólk kom saman á götum úti og krafðist þess að kerfisbundnir kynþáttafordómar innan lögreglu í Bandaríkjunum yrðu upprættir.