Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir að húsleit bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, í íbúð Rudys Giulianis, fyrrverandi lögmanns hans, hafi verið „virkilega ósanngjörn“.
„Rudy Giuliani er mikill föðurlandsvinur. Hann elskar þetta land og þeir ráðast inn í íbúðina hans,“ sagði Trump við Fox Business. „Þetta er virkilega ósanngjarnt og algjör tvískinnungur, meiri en ég hef nokkru sinni séð áður,“ bætti hann við.
„Þetta er mjög, mjög ósanngjarnt. Rudy er föðurlandsvinur sem elskar þetta land og ég veit ekki að hverju þeir voru að leita eða hvað þeir voru að gera.“
Húsleitin var gerð í íbúð Giuliani á Manhattan og á skrifstofu hans í gær. Húsleitin var hluti af rannsókn FBI á samskiptum Giulianis við úkraínsk stjórnvöld en lögmaður hans segir að Giuliani hafi ekkert brotið af sér.
Fyrir síðustu Bandaríkjaforsetakosningar lagði Giuliani kapp á að komast að því hvort Joe Biden Bandaríkjaforseti og sonur hans Hunter hefðu unnið til saka í Úkraínu. Biden hefur neitað öllum ásökunum þess efnis.