Bill og Melinda Gates hafa ákveðið að skilja eftir 27 ára hjónaband.
Í sameiginlegri tilkynningu segja þau: „Við trúum því ekki lengur að við getum vaxið saman sem par.
Eftir langa umhugsun og mikla vinnu í sambandinu höfum við ákveðið að binda enda á hjónaband okkar,“ skrifuðu þau á Twitter.
— Bill Gates (@BillGates) May 3, 2021
Þau hittust seint á níunda áratugnum þegar Melinda gekk til liðs við fyrirtæki Bills, Microsoft. Þau eiga þrjú börn.
Þau reka saman stofnunina Bill & Gates Foundation. Auðæfi þeirra eru metin á um 130 milljarða dollara.