Bretland og Íran eiga í viðræðum vegna 400 milljóna punda sem Bretar skulda Írönum, eða um 70 milljarða króna. James Cleverly, utanríkisráðherra Bretlands, segir viðræðurnar ekki tengjast Nazanin Zaghari-Ratcliffe, bresk-írönskum ríkisborgara, sem er í fangelsi í Íran.
Bretar skulda Írönum þessa upphæð fyrir að láta þá síðarnefndu ekki fá skriðdreka sem þeir keyptu af Bretum á áttunda áratugnum, að sögn BBC.
Zaghari-Ratcliffe telur að írönsk stjórnvöld séu að nota hana vegna deilunnar um skuldina og að hún verði ekki leyst úr haldi fyrr en Bretar borgi.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði einnig að málin tvö tengdust ekki. Hann sagði ráðherra gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja velferð Zaghari-Ratcliffe.
Mál hennar vakti athygli á nýjan leik fyrir skömmu eftir að fangelsisdómur yfir henni var framlengdur um eitt ár, nokkrum vikum eftir að hún lauk afplánun fimm ára dóms.
Hún var fyrst handtekin í Tehran, höfuðborg Írans, árið 2016, grunuð um njósnir. Þeim ásökunum hefur hún ávallt neitað.