Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, segir stjórnvöld í Lundúnum hafa engan grundvöll til að koma í veg fyrir aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi.
Kosningar voru haldnar í landinu á fimmtudag og enn stendur talning atkvæða yfir. Talið er að flokkur Sturgeon endi með að minnsta kosti 63 sæti á skoska þinginu, sem telur alls 129 sæti. Á sama tíma er talið ólíklegt að flokkurinn nái 65 sætum og þar með hreinum meirihluta.
Íhaldsflokkur Boris Johnsons forsætisráðherra Bretlands hefur átt góðu gengi að fagna í talningu atkvæða í Englandi undanfarna daga. Ljóst þykir á sama tíma að Verkamannaflokkurinn hafi beðið sögulegt afhroð. Flokkurinn beið lægri hlut í aukakosningum um þingsætið í Hartlepool, einu sínu traustasta vígi, og þá hefur hann glatað fjölmörgum af sveitarstjórnarmönnum sínum.
En athyglin hefur beinst að Skotlandi, þar sem þjóðarflokkurinn SNP sóttist eftir meirihluta á þinginu í Edinborg og þar með skýru umboði til að boða til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði.
Í ræðu sinni í dag gerði Sturgeon lítið úr þeirri staðreynd að flokknum hefði mistekist það markmið sitt að ná hreinum meirihluta.
Þvert á móti væri nú stærri hluti þingsins fylgjandi sjálfstæði Skotlands, sagði hún og benti á að með Græningjum, sem einnig vilja sjálfstæði, væri meirihluti fyrir þessu á þinginu.
„Það er einfaldlega engin lýðræðisleg réttlæting fyrir Boris Johnson eða nokkurn annan til að hindra rétt fólksins í Skotlandi til að velja okkar eigin framtíð,“ sagði Sturgeon.
Búist er við því að Græningjar fái níu sæti á þinginu.