Olíuleiðslufyrirtækið Colonial Pipeline hefur greitt netglæpamönnum 5 milljónir Bandaríkjadala í lausnargjald til að endurheimta gögn og endurvekja tölvukerfi fyrirtækisins sem hefur legið niðri í viku í kjölfar netárásar. Fyrirtækið hefur tilkynnt að starfsemin muni hefjast aftur næsta miðvikudagskvöld, en þó muni taka nokkra daga að koma henni í eðlilegt horf.
Loka þurfti á olíuleiðslu fyrirtækisins Colonial á sunnudag eftir netárásina sem lamaði tölvukerfi þess, en netglæpamennirnir kröfðust lausnargjalds gegn því að koma kerfinu aftur upp. Colonial voru búnir að gefa út að þeir hygðust ekki borga lausnargjaldið sem netglæpamennirnir kröfðust, en nú lítur út fyrir að þeir hafi skipt um skoðun.
Olíuleiðslan sem um ræðir flytur um 300 milljónir lítra af olíu á dag frá olíulindum í Texas og til áfangastaða á austurströnd Bandaríkjanna, en um 45% þeirrar olíu sem notuð er á austurströndinni er flutt með leiðslunni. Hún er enn ónothæf og mikið magn olíu safnast nú upp í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Stöðvun á starfsemi Colonial hefur skapað örvæntingu meðal íbúa á svæðinu enda ekkert nýtt eldsneyti að berast bensínstöðvum þegar olíuleiðsla Colonial liggur niðri. Eldsneytisverð í suðausturhluta Bandaríkjanna hefur rokið upp, vegna takmarkaðs framboðs, en það hefur ekki verið jafn hátt síðan 2014.
Í síðustu viku samþykkti Joe Biden Bandaríkjaforseti tilskipun sem snýr að því að ráðist verði í að stuðla að auknu netöryggi stofnana til þess að koma í veg fyrir netárásir sem þessar. Það að Colonial hafi látið undan og greitt lausnargjaldið hefur verið álitið gera lítið úr þessum áætlunum ríkisstjórnarinnar.
Netglæpamennirnir á bak við árásina mynda hóp sem ber nafnið The DarkSide. Þeir vinna þannig að þeir brjótast inn í tölvukerfi fyrirtækja, safna viðkvæmum upplýsingum og gefa svo út tilkynningu til fyrirtækjanna að upplýsingunum verði lekið ef ekki er greitt lausnargjald. Uns lausnargjaldið er greitt valda þeir því að allt tölvukerfið liggur niðri svo starfsemi getur ekki haldið áfram.
Nú þegar Colonial hefur greitt lausnargjaldið, sem nemur 5 milljónum Bandaríkjadala, er unnið að því að endurvekja tölvukerfið á ný. Netglæpamennirnir hafa þó verið í vandræðum með að afturkalla aðgerðirnar svo starfsfólk Colonial vinnur sjálft hörðum höndum að endurheimtingu gagnanna til þess að starfsemi fyrirtækisins geti hafist á ný.