Að minnsta kosti ellefu Palestíumenn hafa látið lífið í skærum við hersveitir Ísraelsmanna á Vesturbakkanum í dag, að því er fram kemur í umfjöllun BBC. Áætlað er að minnst 126 hafi látist á Gaza-svæðinu en átta í Ísrael, síðan átökin brutust út á mánudag.
Vesturbakkinn er hernumið landsvæði vestur af Jórdan-fljóti, að hluta undir stjórn Palestínumanna og stjórn Ísraelshers. Meirihluti íbúa svæðisins eru Palestínumenn en töluverður fjöldi gyðinga býr í landnemabyggðum á svæðinu.
Átökin hafa færst yfir stærra landsvæði yfir undanfarna daga þar sem mikil átök hafa brotist út á Vesturbakkanum milli Ísraelshers og ungra Palestínumanna sem eru slegnir yfir atburðum síðastliðinna daga eins og fréttaritari BBC kemst að orði.
Ofbeldisbylgja gengur einnig yfir innan Ísraels. Brotist hafa út slagsmál á milli fylkinga gyðinga og araba í helstu borgum landsins en Reuven Rivlin, forseti Ísraels, hefur varað við að borgarastyrjöld gæti brotist út ef ekkert verði að gert.