Ríkissaksóknari í New York rannsakar nú hvort fasteignafyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafi gerst sekt um saknæmt athæfi. Trump Organization hefur verið til rannsóknar hjá embætti saksóknara í töluverðan tíma.
Að sögn talsmanns embættisins, Fabien Levy, hefur stjórnendum fyrirtækisins verið tilkynnt um að eðli rannsóknarinnar hafi breyst í sakamálarannsókn og sé unnin í samstarfi við saksóknara á Manhattan.
Meðal eigna Trump Organization eru hótel hans og golfvellir en alls skipta rekstrareiningarnar hundruðum.
Trump neitar því að félagið hafi brotið af sér og hefur lýst rannsókninni á fjármálaumsvifum hans sem pólitískum nornaveiðum og þeim alvarlegustu í sögu Bandaríkjanna. Héraðssaksóknari á Manhattan, Cyrus Vance, er demókrati.
Skrifstofa ríkissaksóknara í New York, Letitia James, hefur einnig verið að rannsaka ásakanir á hendur Trump Organization um fjár- og tryggingasvik.
Trump Organization hefur ráðið til sín þekktan verjanda í sakamálum, Ronald Fischetti sem er 84 ára gamall og kominn á eftirlaun. Hann mun verða lögfræðiteymi Trumps til aðstoðar við rannsóknina.