Unglingsstúlkan Darnella Frazier hlaut í gær sérstök Pulitzer-verðlaun fyrir myndbandsupptöku sem hún tók af handtöku lögreglunnar í Minneapolis á George Floyd. Lést hann við handtökuna og var lögreglumaðurinn Derek Chauvin síðar ákærður og fundinn sekur um morð á Floyd. Vakti málið mikla reiði og óhug í Bandaríkjunum og varð kveikjan að risavaxinni mótmælaöldu í Bandaríkjunum og víðar. Pulitzer-verðlaunin eru virtustu blaðamannaverðlaun heims.
Fram kemur hjá dómnefndinni að Frazier hafi sýnt mikið hugrekki við að taka upp morðið og þannig beint sjónum heimsins að lögregluofbeldi. Varpi það ljósi á mikilvægi borgara í vegferð fjölmiðla að sýna hið sanna og sanngjarna.
Frazier gekk fram á lögreglumennina vera að handtaka Floyd 25. maí í fyrra, en hún sagði fyrir dómi að hún hefði ákveðið að byrja að taka upp myndbandið sem sýndi mann í uppnámi sem reyndi að biðjast fyrir lífi sínu.
Í myndbandinu sést Derek Chauvin, sem er hvítur karlmaður, þrýsta hné sínu aftan á háls Floyd í meira en níu mínútur, sem var handjárnaður, og tjáði hann Chauvin oft að hann næði ekki andanum. Lögreglumaðurinn virti að vettugi bón Floyds um að vera látinn laus þar sem hann næði ekki andanum. Floyd hafði verið handtekinn grunaður um að hafa framvísað fölsuðum 20 dala seðli.
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og hörð viðbrögð í Bandaríkjunum áratugum saman. Chauvin var dæmdur fyrir morð 20. apríl og strax fangelsaður. Þyngsta mögulega refsing fyrir morð af annarri gráðu er 40 ára fangelsi. Þar sem þetta er fyrsta brot Chauvin hefði hann undir eðlilegum kringumstæðum átt yfir höfði sér tólf og hálfs árs fangelsi en vegna þess að dómarinn tók fram við dómsuppkvaðninguna mögulega refsihækkun vegna þess hve glæpurinn var grimmilegur, gæti dómurinn orðið þyngri.